Vormót GBS - Úrslit og myndir
22. maí 2026
Hákon Sigursteinsson
Fyrsta móti GBS golfsumarið 2026 er lokið.
Þorláksvöllur var vettvangur fyrsta mótsins í ár. Veðrið var alveg ágætt miðað við árstíma og engin afsökun fyrir neinn. Golfklúbbur Þorlákshafnar hélt utan um mótið og boðið var upp á súpu og brauð í lok hringsins.
Það voru 32 skráðir í mótið, 16 lið, og niðurstaðan sú að einungis munaði 4 stigum milli 1. og 5. sætis. Úrslitin voru þessi (nettó):
- Bjarni Ívar og Ólöf Lára (Bjólöf) á 64 höggum
- Rúna Björg og Sæmundur á 65 höggum
- Hrund og Sævar á 66 höggum
- Jón Ólafur og Oddný Ingiríður á 67 höggum
- Helga og Steinþór (Team nr. 1) á 68 höggum
Frábær keppni og spennandi.
Auk þess voru veitt verðlaun fyrir þann sem var næstur holu á öllum par 3 holum vallarins sem voru fimm:
- Önnur hola; Sæmundur Oddsson á 0,86 m
- Fimmta hola; Helga Björnsdóttir á 3,6 m
- Tíunda hola; Heimir Örn Herbertsson á 2,89 m
- Tólfta hola; Rúna Björg Garðarsdóttir á 7,77 m
- Fimmtánda hola; Hákon Sigursteinsson á 13,0
Hér fylgja nokkrar myndir sem teknar voru á mótinu.