Haustmót GBS 2026

Haustmót GBS 2026

Haustmót GBS verður haldið í Hveragerði laugardaginn 5. september og hefst kl. 10.00.

Spilaðar verður Betri bolti eða Fjórleikur þar sem 2 eru saman í liði. Hvor leikmaður leikur þannig sínum bolta alla leið, ef þess þarf, og fjöldi punkta þess sem fær fleiri punkta á hverri holu, gildir á þeirri holu.

Teigaval er frjálst og allir félagar GBS geta tekið þátt óháð forgjöf, en hámarksleikforgjafir miðast við 36 í grunnforgjöf í þessu móti.

  • Mótsgjald pr. leikmann er kr. 4.000 og greiðist við komu í golfskálanum. Innifalið er súpa og brauð að leik loknum.
  • Hámarksfjöldi er 40 svo það er um að gera að skrá sig tímanlega í mótið.
  • Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin, auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum.

Opnað var fyrir skráningu í mótið í Golfbox 26. ágúst og verður lokað fyrir skráningu föstudaginn 4. september kl. 18:00. Liðin skrá sig saman í golfboxinu.

Mótstjórn GBS