Golfmót Flúðir

Golfmót Flúðir

Búið er að opna fyrir skráningu á næsta golfmót GBS, sem haldið verður á Flúðum, laugardaginn 20. júní. Rástímar eru milli kl. 10:00 - 11:50 og hægt að skrá sig hér.

  • Mótið er punktakeppni með forgjöf og höggleikur.
  • Mótsgjald kr 6.500 og greiðist við skráningu.
  • Allir félagsmenn GBS geta tekið þátt, óháð forgjöf, en grunnforgjöf umfram 36 nýtist ekki í mótinu.

Ath. lokað verður fyrir skráningu þann 19. júní kl. 16:00.

Verðlaun eru fyrir fyrstu 3 sætin í karla og kvennaflokki í punktakeppninni og fyrir besta skor án forgjafar karla og kvenna.

Auk þess verða nándarverðlaun á par 3 brautum og mögulega einhver útdráttarverðlaun.

Athugið að teigaval er frjálst í mótinu en þeir karlar sem keppa um besta skor án forgjafar verða að leika af teigum #52 (Gulir).

Mótanefnd GBS