Aðalfundur GBS árið 2026

Aðalfundur GBS árið 2026

Aðalfundur GBS verður haldinn miðvikudaginn 25. febrúar næstkomandi klukkan 16:30. Stjórn félagsins boðar til fundar. Fundurinn verður í Borgartúni 14, 7. hæð í Vindheimum. Einnig er möguleiki að fylgjast með á fjarfundi. Fundarboð verður sent á félagsmenn ásamt tillögum að lagabreytingum.

Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum GBS:

1. Formaður setur fund

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

3. Skýrsla formanns

4. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins

5. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar

6. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru

7. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga

8. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár

9. Kosning sjö manna stjórnar

10. Kosning endurskoðenda

11. Önnur málefni

Kv. Stjórnin