Áminning að greiða félagsgjöld fyrir 30 apríl

Áminning að greiða félagsgjöld fyrir 30 apríl

Við minnum þau sem enn hafa ekki greitt árgjald GBS fyrir árið 2026 á að ganga frá greiðslu sem allra fyrst.

Hafi árgjaldið ekki verið greitt fyrir 30. apríl getum við ekki tryggt fulla þjónustu. Að auki er stjórn GBS heimilt að fella viðkomandi af félagaskrá, sbr. 6. gr. laga félagsins.

Greiðsluleiðbeiningar

Skráðu þig inn á cloud4club.com.

Smelltu á Félagsaðild og fylgdu leiðbeiningunum þar.

Stafrænt félagsskírteini

Þegar búið er að greiða er einfaldast að skrá sig inn á cloud4club.com í símanum, fara í flipann Félagsskírteini og hlaða nýju korti í veskið (Wallet) í símanum.

Við hvetjum alla til þess að ganga frá greiðslu í tæka tíð hafi það ekki þegar verið gert.

Látið endilega vita ef spurningar vakna, eða ef þið viljið skrá ykkur úr GBS!