Árgjald GBS árið 2026
Við í Golfklúbbi borgarstarfsmanna (GBS) hlökkum til þess að eiga skemmtilegar stundir saman á vellinum á komandi ári. Til þess að tryggja áframhaldandi aðgang þinn að félagsstarfinu og öllum þeim fríðindum sem fylgja því, viljum við minna þig á að greiða árgjaldið fyrir árið 2026.
Árgjald skal greitt eða frá greiðslu þess gengið fyrir 1. maí, ár hvert. Félagsskírteini verður ekki virkt fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu árgjalds. Þegar meðlimur GBS hefur greitt árgjaldið getur hann náð í rafrænt skirteini sem hægt er að setja í símaveski og staðfesta þær skráningar sem gerðar verða golfsumarið 2026.
Ekki verður hægt að tryggja þeim sem greiða eftir 1. maí full réttindi fyrr en í júni. Hafi árgjald ekki verið greitt fyrir 1. júní verður félagsmaður felldur út af félagaskrá GBS þetta árið.
Þú getur greitt árgjaldið með því að smella á greiðsluhlekkinn hér að neðan:
Með greiðslu árgjaldsins tryggir þú þér virka félagsaðild að GBS og fullan aðgang að þeim fjölmörgu kostum sem klúbburinn býður upp á. Meðal helstu fríðinda má nefna:
- Góðan afslátt (oft um 40%) að fjölmörgum vinavöllum GBS.
- Þátttökurétt í öllum spennandi mótum sem GBS stendur fyrir.
- Skráningu í Golfbox.is fyrir þau sem ekki eru félagar í öðrum golfklúbbum.
Svo erum við líka með upplýsingar á bæði Facebook fyrir alla meðlimi GBS (starfsmenn og maka) og Viva Engage fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi greiðsluna eða félagsaðildina, endilega hafðu samband við okkur í gegnum netfangið gbsgolf@outlook.com.
Við hlökkum til að sjá þig á völlunum í sumar og óskum þér góðs golfs á komandi tímabili!
Stjórn GBS