GBS Open á Selsvelli Flúðum

GBS Open á Selsvelli Flúðum

GSB Open verður haldið á Selsvelli á Flúðum, laugardaginn 10. júní, fyrsti rástími kl 13:00.

  • Spilaðar verða 18 holur með “Texas scramble” fyrirkomulagi ( 2 saman í liði). Liðin skrá sig saman í golfboxinu.
  • Deilt er með 3 í samanlagða leikforgjöf beggja liðsmanna.
  • Hámarksforgjöf/forgjafarmörk í mótinu er 36 í grunnforgjöf.
  • Teigaval er frjálst og ræðst leikforgjöf af því.
  • Hvert lið getur aldrei fengið hærri leikforgjöf heldur en forgjafalægri liðsmaðurinn.

Mótsgjald pr. leikmann er 4.500 kr. og greiðist á staðnum.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin, auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum.

Ef lið eruð jöfn að leik loknum þá ræður skorið á seinni 9 holunum. Ef þær eru jafnar þá eru það síðustu 6 holurnar og svo síðustu 3 og ef enn er jafnt þá er það síðasta holan. Ef enn er jafnt þá er það hlutkesti sem ræður.

Mótstjórn GBS.