Vormót GBS

Vormót GBS

Fyrsta mót sumarsins verður haldið í Þorlákshöfn, sunnudaginn 17. maí. Leikfyrirkomulag er Texas Scramble, tveir saman í liði. 

Leikurinn fer þannig fram að báðir leikmenn slá af teig og velja síðan betra teighöggið. Sá sem á lakari bolta tekur hann upp og leggur bolta niður innan skorkortslengdar frá þeim stað sem betri boltinn er. Sá bolti sem er valinn skal sleginn fyrst og skal hann ekki hreyfður. Því næst slær hinn þannig gengur leikurinn þar til einn bolti er kominn í holuna.

Hámarks grunnforgjöf er 36 og reiknast forgjöf liða sem samanlögð vallarforgjöf liðs, deilt með 3. Hvert lið getur ekki fengið hærri leikforgjöf heldur en forgjöf þess sem er með lægri forgjöf.

Við skráningu er gert er ráð fyrir að konur leiki af rauðum teigum og karlar af gulum. Ef ætlunin er að spila af öðrum teigum, þá er það heimilt en tilkynna þarf mótanefnd það með pósti á gbsgolf@outlook.com eigi síðar en degi fyrir mót og ræðst forgjöf af teigavali.

Rástímar eru milli 10:00-11:30.

Mótsgjald kr. 6.300 greiðist í skála og er súpa og brauð fyrir alla í lok móts.

Verðlaun eru fyrir fyrstu 5 sætin auk nándarverðlauna á par 3 brautum.

Skráning í mótið er í Golfboxinu, hér er linkur á mótið:  Golf

Einnig má fara á golf.is – Valmynd – Mótaskrá – Opin mót og velja Golfklúbb Þorlákshafnar

Ath. við skráningu þarf að ská liðsfélaga.