GBS Trackman Vormótaröð 2026

GBS Trackman Vormótaröð 2026

Ágætu félagar, nú fer sól að hækka á lofti og tímabært að dusta rykið af kylfunum og taka þátt í golfhermamóti GBS, sem hefst sunnudaginn 8. febrúar.

Mótið er opið í öllum Trackman hermum en mótanefnd bendir sérstaklega á Golfsvítuna, Birdie, Nítjándu og Golfhöllina sem bjóða upp á afslætti fyrir félagsmenn GBS.

Dagsetningar og vellir

  • 8 – 14 febrúar, Grafarholt, seinni 9
  • 15 – 21 febrúar, Yellowstone, fyrri 9
  • 22 – 28 febrúar, Keilir Hafnarfirði, fyrri 9
  • 1 – 7 mars, Cabot Links, fyrri 9
  • 8 – 14 mars, Jaðarsvöllur Akureyri, fyrri 9
  • 15 – 21 mars, Reserve at Moonlight, fyrri 9
  • 22 – 28 mars, Korpan - Áin, seinni 9
  • 29 mars – 4 apríl, Old Head Golf Links, fyrri 9
  • 5 – 11 apríl, GKG, Leirdalur, seinni 9

Keppendur hafa eina viku til að ljúka hverri umferð og fá TVÆR tilraunir pr. völl.

Þetta er punktakeppni þar sem 3 bestu umferðir telja. Stig eru reiknuð samkvæmt Order of Merit í Trackman. Ef kylfingar eru jafnir þá gildir 4. hringurinn, svo 5. hringurinn og svo koll af kolli þangað til úrslit nást.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sæti kvenna og 3 efstu sæti karla. Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar karla og kvenna.

Tölvupóstur var sendur á alla félaga í GBS 3. febrúar með boði um þátttöku og fer skráning fram í Trackman. Ath. það þarf að nota sama netfang í Trackman og notað er í Cloud4club.

Ath. keppendur verða að hafa gilda forgjöf í Trackman (leika þarf að lágmarki 3 hringi til að virkja hana). Forgjöf í Trackman má ekki vera hærri en skráð forgjöf viðkomandi í Golfbox. Mótanefnd GBS áskilur sér rétt til að ógilda hringi ef keppt er með ranga eða of háa forgjöf.

Eftirfarandi stillingar verða í mótinu:

Flatir: Soft, stimp: 9 fet, Holustaðsetningar: Medium, Vindur: Calm
Pútt: Auto Fixed (1 pútt: < 3 metra; 2 pútt: 3,1-20 metra; 3 pútt: >20 metra).

Teigaval er frágengið og leika allir karlar af sama teig og konur af sama teig.

Umsjón með móti hefur mótanefnd GBS og Golfsvítan