Meistaramót GBS 2026

Meistaramót GBS 2026

Meistaramót GBS 2026 er haldið 15. júlí í Öndverðarnesi. Hámarksföldi þátttakenda er 48. Eingöngu fyrir félaga í Golfklúbbi Borgarstarfsmanna. Spilaður verður höggleikur með og án forgjafar í meistaraflokki og punktakeppni í fyrsta flokki.

Skráning í mótið verður í golfboxinu (smellið hér til að skrá ykkur) og líkur skráningu þriðjudag 14. júlí kl. 12:00. Mótsgjald er aðeins kr. 7.500 og greiðist við skráningu. Ekki er endurgreitt eftir 14. júlí ef kylfingar hætta við mætingu. Innifalið í mótsgjaldinu er matur að leik loknum, kjúklingasúpa og brauð.

  • Meistaraflokkur kvenna forgjöf: 28 og lægri (rauðir teigar) Höggleikur með og án forgjafar.
  • Meistaraflokkur karla, forgjöf: 24 og lægri (gulir teigar) Höggleikur með og án forgjafar.
  • Fyrsti flokkur kvenna, forgjöf: 28,1 og hærri (rauðir teigar) Punktakeppni.
  • Fyrsti flokkur karla, forgjöf: 24,1 og hærri (gulir teigar) Punktakeppni.

Hámarksleikforgjöf karla og kvenna 36. Einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og dregið úr skorkortum.

Þeir keppendur í fyrsta flokki karla sem vilja spila á öðrum teigum en gulum geta breytt um teig við skráningu. Mótstjórn áskilur sér rétt til að þess sameina flokka eða breyta ef skráning verður dræm.

Verðlaun eru fyrir fyrstu 3. sætin í höggleiknum, með og án forgjafar, í bæði karla- og kvennaflokki samtals 12 verðlaun og fyrir 3 efstu sætin í hverri punktakeppni samtals 6 verðlaun.