Golfmót Flúðir
20. júní 2026
Lúðvik Vilhelmsson
Búið er að opna fyrir skráningu á næsta golfmót GBS, sem haldið verður á Flúðum, laugardaginn 20. júní. Rástímar eru milli kl. 10:00 - 11:50 og hægt að skrá sig hér.
- Mótið er punktakeppni með forgjöf og höggleikur.
- Mótsgjald kr 6.500 og greiðist við skráningu.
- Allir félagsmenn GBS geta tekið þátt, óháð forgjöf, en grunnforgjöf umfram 36 nýtist ekki í mótinu.
Ath. lokað verður fyrir skráningu þann 19. júní kl. 16:00.
Verðlaun eru fyrir fyrstu 3 sætin í karla og kvennaflokki í punktakeppninni og fyrir besta skor án forgjafar karla og kvenna.
Auk þess verða nándarverðlaun á par 3 brautum og mögulega einhver útdráttarverðlaun.
Athugið að teigaval er frjálst í mótinu en þeir karlar sem keppa um besta skor án forgjafar verða að leika af teigum #52 (Gulir).
Mótanefnd GBS