Lög
LÖG GOLFKLÚBBS BORGARSTARFSMANNA (GBS)
I. Heiti, heimili og hlutverk
1. grein
Félagið heitir Golfklúbbur borgarstarfsmanna (GBS). Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
GBS er aukaaðili að Golfsambandi Íslands (GSÍ).
2. grein
Markmið GBS á hverjum tíma er að efla áhuga manna á golfíþróttinni og að vinna að framgangi hennar.
II. Félagsmenn
3. grein
Félagar geta allir orðið, sem eru fastráðnir starfsmenn Reykjavíkurborgar. Félögum býðst einnig að skrá maka sinn í klúbbinn.
GBS félögum sem láta af störfum hjá Reykjavíkurborg fyrir aldurs sakir stendur til boða að halda aðild sinni að klúbbnum.
4. grein
Samþykktur umsækjandi telst félagsmaður og fer á félagaskrá er hann hefur greitt ákvörðuð gjöld.
Um félagsaðild og þátttöku félagsmanna á golfmótum skal farið að lögum og reglum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) og GSÍ.
5. grein
Árgjöld og inntökugjöld skulu ákveðin á aðalfundi til eins árs í senn.
6. grein
Árgjald skal greitt eða frá greiðslu þess gengið fyrir 1. maí ár hvert.
Hafi árgjald ekki verið greitt fyrir 1. maí er félagsstjórn heimilt að fella viðkomandi af félagaskrá.
Eftir umsókn félagsmanns, og ef um er að ræða sérstakar aðstæður hans, er stjórninni heimilt að veita undanþágu frá greiðslu gjalda.
7. grein
Við golfleik skal farið eftir St. Andrews golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma og þeim reglum sem GSÍ setur.
Svo fremi sem þessar golfreglur banna ekki, getur stjórnin sett sérreglur (staðarreglur) um golfleikinn og um umgengni og annað sem henni þykir þurfa hverju sinni.
8. grein
Félagsmenn eru skyldugir að fara eftir þeim golfreglum sem gilda á hverjum tíma enda sér stjórnin um að þær séu nægilega kynntar og aðgengilegar félagsmönnum.
Brjóti félagsmaður alvarlega eða ítrekað gegn reglum félagsins getur stjórnin beitt viðkomandi viðurlögum sem geta verið áminning, tímabundinn missir réttinda til að bóka rástíma á vegum félagsins eða brottvísun úr félaginu.
Stjórnin getur skipað aganefnd til þess að fara með agavald sitt.
Brottvísun úr félaginu skal þó ætíð háð samþykki stjórnarinnar.
III. Stjórn
9. grein
Kjörgengir til stjórnarstarfa eru lögráða félagsmenn.
10. grein
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum sem kosnir eru á aðalfundi en formann félagsins skal kjósa sérstaklega.
Formaður félagsins er aðalforsvarsmaður þess og kemur hann fram fyrir hönd félags og stjórnar þegar við á, auk þess sem hann stýrir stjórnarfundum og sinnir öðrum þeim verkefnum sem stjórnin kann að fela honum og lög heimila.
11. grein
Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér störfum þannig að einn skal vera varaformaður og staðgengill formanns, einn ritari, einn gjaldkeri og 3 meðstjórnendur.
Þá skipar stjórnin í nefndir sem starfa á vegum félagsins og tilnefnir fulltrúa félagsins í nefndir og ráð sem það á aðild að.
12. grein
Á aðalfundi gerir formaður, eftir því sem unnt er, grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi félagsins á væntanlegu starfsári.
Einnig skal kynna rekstrar- og fjárhagsáætlun.
13. grein
Stjórnin skal leitast við að tryggja félagsmönnum aðgang að golfkennslu/námskeiðum og niðurgreiða kostnað sé þess kostur.
Heimilt er stjórninni að greiða mönnum beinan kostnað sem leiðir af störfum þeirra fyrir félagið.
14. grein
Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja og ber ábyrgð gerða sinna fyrir aðalfundi.
15. grein
Fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins getur stjórnin gert að tillögu sinni að aðalfundur ákveði að tiltekinn félagsmaður, einn eða fleiri, verði gerður að heiðursfélaga.
Heiðursfélagar greiða ekki árgjald en njóta allra félagsréttinda. Tilnefningunni skal fylgja sérstakt skjal til staðfestingar.
Á sérstökum tímamótum getur stjórnin veitt félagsmönnum og/eða velunnurum félagsins heiðursmerki og/eða afreksmerki félagsins í samræmi við reglur sem um slíkt gilda.
IV. Aðalfundur
16. grein
Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins. Aðalfund skal halda í Reykjavík í febrúar ár hvert og skal til hans boðað skriflega með viku fyrirvara hið skemmsta, ásamt tilgreindri dagskrá.
17. grein
Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um málefni félagsins sé löglega til hans boðað.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi nema annað sé ákveðið í lögum þessum.
Atkvæðisrétt hafa allir lögráða félagsmenn.
18. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera:
- Formaður setur fund.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla formanns.
- Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
- Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
- Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
- Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
- Kosning sjö manna stjórnar.
- Kosning endurskoðenda.
- Önnur málefni ef einhver eru.
Fundarstjóra og fundarriturum er skylt að ganga frá fundargerðum.
19. grein
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi þess og skal tillögum til lagabreytinga eða um breytingar á starfstilhögun skilað til stjórnar eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.
Nái tillaga til lagabreytingar samþykki 2/3 (tveggja þriðju hluta) greiddra atkvæða fær hún gildi.
20. grein
Stjórnin getur boðað til félagsfundar ef henni þykir henta.
Stjórninni er skylt að halda félagsfund ef 1/10 félagsmanna óskar þess.
Slíkan fund skal halda innan þriggja vikna frá því að skrifleg beiðni og rökstuðningur hefur borist stjórninni.
Fundinn skal boða með sama hætti og reglulegan aðalfund.
V. Ýmis ákvæði
21. grein
Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með sama hætti og aðalfund.
Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst helmingur félagsmanna sækir fundinn og tillagan fær gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana.
Mæti ekki nægilega margir skal boða til fundar á ný og halda hann innan þriggja vikna.
Sá fundur er ályktunarhæfur án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana.
22. grein
Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember.
23. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þannig samþykkt á aðalfundi 26. febrúar 2016.