Árgjöldin 2026 og aðalfundur

Árgjöldin 2026 og aðalfundur

Ágætu félagar

Í gær var haldinn aðalfundur GBS. Ný stjórn tekur við, fjórir halda áfram (Hákon Sigursteinsson, Eggert Ólafsson, Gylfi Ástbjartsson og Lúðvík Vilhelmsson), en þrír vildu hætta í stjórn. Það eru þau Sigríður María Hreiðarsdóttir, Kristín Þórdís Ragnarsdóttir og Björn Axelsson. Stjórn GBS þakkar þeim kærlega fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Þrír meðlimir GBS gáfu kost á sér í nýja stjórn en það eru þau Anna Kristín Magnúsdóttir, Helga Björnsdóttir og Kristján Jökull Sigurðsson.

Tillaga stjórnar um félagsgjöld fyrir næsta ár var samþykkt, samtals um 3,3% hækkun sem er vel undir hækkunum klúbbanna.

Gjald
A - Starfsmenn aðeins í GBS35.800 kr.
B - Starfsmenn í öðrum klúbbi og GBS10.900 kr.
C - Makar aðeins í GBS38.500 kr.
D - Makar í öðrum klúbbi og GBS13.600 kr.

Ný heimasíða klúbbsins var kynnt (https://gbsgolf.is) sem veitir okkur betri yfirsýn yfir starfsemi klúbbsins, m.a. þá samninga sem við höfum gert við golfklúbba eða -herma.

Eins er aðgengilegra að skrá sig eða maka sinn í klúbbinn og frá og með nú er opið fyrir skráningu í klúbbinn.

Að lokum er vert að minnast á mikilvægi þess að meðlimir GBS notist við sama netfang í Golfbox , Golfmore og okkar kerfi (C4C). Að ekki sé talað um

Trackman 🙂